Streymi frá skemmtiefni

Hvort sem þú vilt létta lundina hjá samstarfsmönnum, lokuðum hópum eða landsmönnum almennt býður streymi uppá mikla möguleika. Hægt að blanda saman lifandi mynd, upptökum og grafík eftir þörfum og taka við endurgjöf frá áhorfendum á rafrænan hátt. Margir góðir kostir eru í boði og meðal þeirra má nefna:

Bingó

Bjóðum uppá snilldar lausnir fyrir bingó í beinni útsendingu. Spjöldum er dreift á rafrænan hátt og þátttakendur geta valið hvort þeir prenta þau út eða fylla út á skjá. Hægt er að spila allar mögulegar útfærslur af leikjum og einfalt er fyrir bingóstjóra að staðfesta hvort vinningsspjöld séu rétt útfyllt. Við tryggjum að streymi frá bingóstjórum skili sér með lágmarks seinkun og skilaboð þátttakenda komist til stjórnenda á öruggan hátt.

Húsasmiðjubingó Screenshot 1000x700

Uppistand

Uppistand hressir, bætir og kætir og það er mikilvægt að láta tæknina ekki spilla gleðinni. Við sjáum um að mynd, hljóð og lýsing sé eins og best verður á kosið hvort sem um er að ræða lifandi útsendingu eða upptöku. Setjum upp vefsvæði fyrir útsendinguna eða streymum á þeim miðli sem óskað er.

Spurningaleikir

Rafræn tækni býður uppá marga spennandi möguleika fyrir spurningaleiki sem hægt er gera enn skemmtilegri með lifandi streymi. Hægt er að setja upp einstaklings- eða liðakeppni og spyrill stjórnar leiknum í beinni útsendingu. Einfalt er að blanda sama lifandi mynd, grafík, upptökum eða öðrum skemmtiatriðum eftir óskum hvers og eins.

Ari Eldjárn 1000x750