Streymi frá ráðstefnum

Að streyma frá ráðstefnu hefur marga kosti og er góð leið til að ná til stærri hóps á áhrifaríkan hátt. Hægt er að blanda saman lifandi myndefni, kynningarefni og upptökum eftir óskum hvers og eins til að skapa sem sterkasta upplifun fyrir áhorfendur. Á meðan á erindi stendur er hægt að taka við spurningum á rafrænan hátt og setja upp pallborðsumræður að því loknu.

Þátttakendur geta auðveldlega valið mismunandi ráðstefnusali og allt efni getur verið aðgengilegt að ráðstefnu lokinni. Setjum upp vefsvæði fyrir lifandi streymi og upptökur sé þess óskað.