Streymi frá íþróttum

Streymi getur verið einföld og góð leið til að koma íþróttaviðburði til þeirra sem geta af einhverjum ástæðum ekki mætt til að hvetja sitt lið. Hægt er að blanda saman lifandi mynd og upplýsingum um stöðu, tíma eða lýsingu þular. Einnig er hægt að klippa inn auglýsingar og önnur skilaboð frá styrktaraðilum til að styðja við tekjuöflun.

Útvegum sérstakt vefsvæði eða streymum á þeim miðlum sem óskað er. Að leik loknum er til hágæða upptaka sem þátttakendur og þjálfarar geta notað til leikgreiningar eða frekari úrvinnslu.