Streymi frá fyrirlestrum

Við tryggjum að allt sé klárt þegar fyrirlesturinn byrjar og hljóð og mynd komist til skila í góðum gæðum. Setjum upp vefsvæði fyrir útsendinguna eða streymum á þeim miðli sem þú ert vanur að nota. Við blöndum saman lifandi mynd og glærum eða grafík eftir þínum óskum og sjáum til þess að endurgjöf hlustenda komist til skila.

Að fyrirlestri loknum átt þú upptöku til frekari úrvinnslu eða dreifingar. Við getum aðstoðað við eftirfylgni með rafrænni könnun eða samantekt á annarri endurgjöf svo að fyrirlesturinn nýtist þér og þínum áhorfendum sem allra best. Veitum einnig ráðgjöf varðandi tækni og grunnatriði í framkomu sé þess óskað.