Streymi frá fundum

Það getur verið áskorun að stýra árangursríkum fundi og þá er gott að þurfa ekki að hafa áhyggjur af tæknimálum. Hvort sem um er að ræða upplýsingafundi eða lifandi umræður er lykilatriði að geta byrjað á réttum tíma og allir sjáist og heyrist greinilega. Við blöndum saman lifandi myndum og glærum eða öðru myndefni eftir þínum óskum svo að öll skilaboð komist skýrt til skila.

Setjum upp vefsvæði fyrir útsendinguna eða streymum á þeim miðli sem fundarmenn eru vanir að nota. Að fundi loknum er hægt að fá upptöku til varðveislu eða frekari dreifingar sé þess óskað. Við leggjum áherslu á trúnað og öryggi allra upplýsinga og afhendum öll gögn að fundi loknum. Bjóðum einnig aðgang að kerfi fyrir rafrænar atkvæðagreiðslur